Home Fréttir Í fréttum Níu aðilar buðu í þjónustu við trjáfellingar í Reykjavík

Níu aðilar buðu í þjónustu við trjáfellingar í Reykjavík

182
0
Níu aðilar buðu í þjónustu við trjáfellingar í Reykjavík

Níu aðilar buðu í þjónustu við trjáfellingar í Reykjavík

Níu aðilar skiluðu tilboðum í EES-útboð Reykjavíkurborgar vegna þjónustu við trjáfellingar í borgarlandinu. Um er að ræða rammasamning um hirðingu skógar- og gróðursvæða borgarinnar, meðal annars grisjun, trjáklifur, kjarrsögun, stubbatætingu og kurlun.

Tilboð voru opnuð hjá Reykjavíkurborg í dag, 20. ágúst, í útboði nr. 16319 „Þjónusta við trjáfellingar í borgarlandinu – Rammasamningur“.

Markmið útboðsins er að kaupa þjónustu vegna hirðingar skógræktarsvæða og annarra gróinna svæða Reykjavíkurborgar.

Verkefnunum er skipt í sjö verkflokka sem ná meðal annars til grisjunar, kjarrsögunar og klippinga, klifurs og riggingar, útdráttar og útkeyrslu, stubbatætingar, botnkurlunar og kurlunar.

Níu aðilar skiluðu tilboðum

Eftirtaldir aðilar tóku þátt í útboðinu:

  • Allt fyrir garðinn ehf.
  • Moldarblandan-Gæðamold
  • Arboristi ehf.
  • Gróinn ehf.
  • Garðaþjónusta Sigurjóns ehf.
  • Garðmenn ehf.
  • Hreinir Garðar ehf.
  • Skógræktarfélag Reykjavíkur
  • Garðlist ehf.

Þátttaka fyrirtækjanna er mismunandi eftir verkflokkum. Allt fyrir garðinn, Hreinir Garðar og Garðlist skiluðu tilboðum í alla sjö verkflokkana.

Rammasamningurinn er gerður til eins árs en Reykjavíkurborg hefur heimild til að framlengja hann þrisvar sinnum um eitt ár í senn. Samningurinn getur því gilt í allt að fjögur ár.

Heimild: Reykjavik.is

Efni: Níu aðilar buðu í þjónustu við trjáfellingar í Reykjavík