Home Fréttir Í fréttum Framkvæmd við Þeistareykjalínu 1 og Kröflulínu 4 stöðvaðar að kröfu Landverndar

Framkvæmd við Þeistareykjalínu 1 og Kröflulínu 4 stöðvaðar að kröfu Landverndar

114
0
Mynd: Landsvirkjun

Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála felldi á föstudag tvo úrskurði um stöðvun framkvæmda vegna ákvarðana sveitarstjórnar Þingeyjarsveitar um að samþykkja framkvæmdaleyfi fyrir Þeistareykjalínu 1 og Kröflulínu 4. Úrskurðirnir eru til bráðabirgða á meðan nefndin fjallar um kærur Landverndar vegna útgáfu framkvæmdaleyfanna.

<>

Þeistareykjalína 1

Lengd fyrirhugaðrar Þeistareykjalínu 1 er 28,2 km frá Þeistareykjum að Bakka og liggja 7,7 km innan Þingeyjarsveitar. Innan Norðurþings er línan rúmir 20 km.

Úrskurðurinn felur í sér að Landsneti er óheimilt að hefja framkvæmdir við Þeistareykjalínu 1 innan Þingeyjarsveitar. Framkvæmdir á viðkomandi svæði voru ekki hafnar.

Kröflulína 4

Lengd fyrirhugaðrar Kröflulínu 4 er 32,7 km frá Kröflu að Þeistareykjum og liggja um 12 km innan Þingeyjarsveitar. Innan Skútustaðahrepps er línan um 21 km.

Hvað varðar Kröflulínu 4 innan Þingeyjarsveitar tekur úrskurður um stöðvun til framkvæmda í nágrenni  Þeistareykjavirkjunar sem er um 7 km af línuleiðinni.  Sökum þessa hafa framkvæmdir á viðkomandi svæði þegar verið stöðvaðar.

Guðmundur Ingi Ásmundsson forstjóri Landsnets:

“  Stöðvun eins og þessi hefur mikil áhrif á framkvæmdirnar og mögulega stöndum við frammi fyrir því að geta ekki staðið við skuldbindingar okkar vegna Bakka og Þeistareykjavirkjunar.  Framkvæmdirnar hafa farið í gegnum alla lögbundna ferla er snúa að umhverfismati og skipulagi. Í tilviki Þeistareykjalínu 1 hefur verið  breið sátt um verkefnið og  samið við alla landeigendur á línuleiðinni. Fyrir framkvæmdaraðila eins og Landsnet er mikilvægt að ferlarnir sem fyrirtækið starfar eftir séu skýrir.  Það hlýtur að vera umhugsunarefni ef stjórnsýslan er orðin með þeim hætti að verið sé að fjalla um grundvallarþætti umhverfismatsins og fyrri stjórnsýsluákvarðanir  svo seint í ferlinu. Þó mismunandi skoðanir séu um túlkanir laga og afturvirkni breytinga á þeim þá er markmið laganna áfram  að dregið sé úr áhrifum framkvæmdanna á umhverfið og að umhverfismatið sé unnið á faglegum forsendum.  Hefur öll sú mikla vinna sem fram hefur farið miðað að því.  Landsnet hefur nú þegar óskað eftir flýtimeðferð hjá úrskurðarnefndinni.”