Hraðútboð
Vegagerðin óskar eftir tilboðum í endurmótun 2,6 km Árbæjarvegar frá núverandi klæðningarenda og tæplega að Árbakka, ásamt útlögn klæðingar.
Helstu magntölur eru:
- Ræsi 24 m
- Neðra burðarlag 4.000 m3
- Efra burðarlag 2.225 m3
- Tvöföld klæðing 15.445 m2
- Frágangur fláa 14.815 m2
Verkinu skal að lokið eigi síðar en 25. september 2016.
Útboðsgögn verða seld á minnislykli hjá Vegagerðinni Breiðumýri 2 á Selfossi og Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) frá og með þriðjudeginum 5. júlí 2016. Verð útboðsgagna er 2.000 kr.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 12. júlí 2016 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag.