Home Fréttir Í fréttum Ný Þjórsárbrú við Árnes sett í salt eins og Hvammsvirkjun

Ný Þjórsárbrú við Árnes sett í salt eins og Hvammsvirkjun

150
0
Teikning af fyrirhugaðri brú. Horft á brúna til suðurs, úr Árnessýslu yfir í Rangárvallasýslu. VEGAGERÐIN

Ný brú yfir Þjórsá á móts við Árnes, sem til stóð að bjóða út í haust, frestast um óákveðinn tíma eftir að virkjunarleyfi Hvammsvirkjunar var fellt úr gildi. Oddvitar sveitarfélaganna beggja vegna Þjórsár vonast til að brúarsmíðin tefjist ekki of mikið og segja brúna hafa mikla þýðingu fyrir uppsveitir Suðurlands.

<>

Þjórsá var fyrst brúuð við Þjótanda árið 1895 og þar var eina brúarstæðið yfir þetta stórfljót allt þar til stíflumannvirki Búrfellsvirkjunar risu við Ísakot á árunum fyrir 1970. En núna er Landsvirkjun farin að huga að enn einni brúnni yfir Þjórsá.

Brúin og vegurinn koma beint suður af þorpinu Árnesi og ofan við eyjuna Árnes.
GRAFÍK/HAFSTEINN ÞÓRÐARSON

Í fréttum Stöðvar 2 kom fram brúin verður rúmlega tvöhundruð metra löng og byggð skammt ofan við eyjuna Árnes og fossinn Búða. Brúarsmíðin er hluti af vegagerð vegna fyrirhugaðrar Hvammsvirkjunar og kemur til með að stytta vegalengdir um tugi kílómetra milli efstu byggða í Árnes- og Rangárvallasýslu.

„Við höfum auðvitað hugsað okkur gott til glóðarinnar að fá þessa brú, því þetta tengir uppsveitir Rangárvallasýslu og Árnessýslu saman og opnar á allskonar möguleika hvað varðar ferðaþjónustu og annað,“ segir Eggert Valur Guðmundsson, oddviti Rangárþings ytra.

Eggert Valur Guðmundsson, oddviti Rangárþings ytra.
EINAR ÁRNASON

„Með því að tengja saman þessi tvö stóru landbúnaðarhéruð, og á sama tíma að fá tengipunkt fyrir afhendingu á rafmagni, þá skapast hér ákveðin tækifæri til uppbyggingar á atvinnu, til dæmis tengt landbúnaðarframleiðslu á stórum skala,“ segir Haraldur Þór Jónsson, oddviti Skeiða- og Gnúpverjahrepps.

Til að tengja brúna við þjóðvegakerfið er ætlunin að leggja sjö og hálfs kílómetra langan veg, sem norðanmegin tengist Þjórsárdalsvegi skammt vestan við þorpið Árnes og sunnanmegin Landvegi skammt frá bænum Minni-Völlum. Gnúpaverjamegin sjá menn fram á að Árnes eflist.

Haraldur Þór Jónsson, oddviti Skeiða- og Gnúpverjahrepps.
SIGURJÓN ÓLASON

„Auðvitað mun það hafa gríðarleg áhrif hér á nærsamfélagið og svæðið í heild sinni. Vegtengingin yfir Þjórsá mun miðjusetja Árnes raunverulega í allri ferðaþjónustu á Suðurlandi,“ segir Haraldur Þór.

Ógilding virkjunarleyfis Hvammsvirkjunar í síðasta mánuði hefur núna sett vega- og brúargerðina í óvissu en til stóð að bjóða hana út í haust eða vetur. Hætt er við að bið Sunnlendinga eftir brúnni lengist enn.

Fyrirhugaður Búðafossvegur mun tengjast Þjórsárdalsvegi á móts við þorpið Árnes lengst til vinstri. Hægra megin mun nýi vegurinn tengjast Landvegi milli bæjanna Minni-Valla og Flagbjarnarholts.
VEGAGERÐIN

„Það eru um það bil fjórtán ár síðan upphaflega stóð til að byggja tvær brýr hérna í uppsveitunum, aðra milli Flúða og Reykholts, sem sannarlega var byggð af Vegagerðinni á sínum tíma og varð mikil samgöngubót þá.

Það var ávallt hengt á Hvammsvirkjun að Landsvirkjun þyrfti að greiða þessa brúarsmíði,“ segir Haraldur Þór, oddviti Skeiða- og Gnúpverjahrepps.

„Ég svo sem veit ekki hvað þetta frestast lengi, þó svo að virkjanaleyfið hafi farið eins og það fór. Ég hef nú ekki trú á að það verði nein svakaleg töf á þessu,“ segir Eggert Valur, oddviti Rangárþings ytra.

Heimild: Visir.is