Stækkun flugstöðvar og nýtt flughlað á Akureyrarflugvelli eru á meðal samgönguframkvæmda í sérstökum efnahagsaðgerðum stjórnvalda vegna kórónuveirufarsóttarinnar, sem kynnt voru í mars.
Samkvæmt upplýsingum frá Isavia verða tilboð í hönnun á viðbyggingu og breytingu á flugstöðinni opnuð á morgun, 10. júlí. Þar er um að ræða 1000 fermetra byggingu fyrir millilandaflug og aðlögun núverandi flugstöðvar að breyttri notkun.
Þá verði útboð vegna stækkunar flughlaðs auglýst á næstu dögum. Í því felst jarðvinna vegna flutnings olíutanka og ferging á flughlaði.
Á þessu ári eru 200 milljónir króna ætlaðar í hönnun á stækkun flugstöðvarinnar og 315 milljónir í flughlaðið. Áætlað er að um 50 ársverk skapist þegar framkvæmdir við flugstöðina hefjast og að um 40 ársverk verði til við stækkun á flughlaði.
Heimild: Ruv.is