Home Á döfinni Fyrirhugaðar opnanir útboða 29.05.2026 Yf­ir­borðs­merk­ingar gatna í Garða­bæ 2026 – Útboð

29.05.2026 Yf­ir­borðs­merk­ingar gatna í Garða­bæ 2026 – Útboð

33
0
útboð
Mynd: Garðabær

Útboð:

Garðabær hefur auglýst útboð vegna yfirborðsmerkinga gatna í bænum fyrir árið 2026 ásamt möguleika á áframhaldandi þjónustu næstu þrjú ár.

Verkið felur í sér endurnýjun og viðhald yfirborðsmerkinga gatna þar sem merkingar hafa látið á sjá vegna aldurs, umferðar og veðuráhrifa.

Yfirborðsmerkingar á götum og gangbrautum

Samkvæmt útboðslýsingu verður meðal annars unnið við merkingar á:

  • Akbrautarlínum
  • Hindrunarlínum
  • Biðskyldu- og stöðvunarlínum
  • Gangbrautum
  • Örum
  • Hraðamerkingum

Helstu magntölur verkefnisins eru:

  • Sprautumössun: 47.300 metrar
  • Vegmössun lína: 1.250 m²
  • Vegmössun merkinga: 1.700 stk.
  • Fræsun: 70 m²

Samningur til þriggja ára

Fram kemur að um sé að ræða verkefni til næstu þriggja ára með möguleika á framlengingu um eitt ár til viðbótar.

Verklok fyrir framkvæmdir ársins 2026 eru áætluð 21. ágúst 2026.

Tilboð opnuð í maí

Útboðsgögn eru rafræn og aðgengileg í útboðskerfi NTI Bidco frá og með 19. maí 2026.

Tilboð verða opnuð rafrænt 29. maí 2026.

Heimild: Garðabær