Home Fréttir Í fréttum 05.06.2026 Borgarbyggð. Gatnaframkvæmdir á Bröttugötu – Útboð

05.06.2026 Borgarbyggð. Gatnaframkvæmdir á Bröttugötu – Útboð

52
0
Útboð

Útboð:

Borgarbyggð, Veitur ohf. og Rarik ohf. hafa auglýst sameiginlegt útboð vegna umfangsmikilla gatna- og lagnframkvæmda við Bröttugötu í Borgarnesi.

Verkið felur meðal annars í sér endurnýjun götu og gangstétta ásamt lagningu dreifikerfa fráveitu, vatnsveitu, hitaveitu og rafveitu.

Endurnýjun götu og gangstétta

Framkvæmdir á vegum Borgarbyggðar fela í sér endurnýjun yfirborðs götu, bílastæða og gangstétta.

Helstu magntölur framkvæmdarinnar eru:

  • Uppgröftur: 1.760 m³
  • Fylling: 310 m³
  • Styrktarlag: 1.100 m³
  • Burðarlag: 210 m³
  • Malbik: 1.100 m²
  • Steyptar gangstéttir: 390 m²

Nýjar fráveitu-, vatns- og hitaveitulagnir

Veitur ohf. munu leggja ný dreifikerfi fráveitu, vatnsveitu og hitaveitu samhliða gatnagerðinni.

Helstu magntölur lagnaframkvæmda eru:

  • Fráveitulagnir: 240 metrar
  • Vatnsveitulagnir: 245 metrar
  • Hitaveitulagnir: 320 metrar
  • Lagnaskurðir: 1.360 m³

Rarik sér um rafveituframkvæmdir

Framkvæmdir á vegum Rarik fela meðal annars í sér:

  • Gröft lagnaskurða
  • Vernd eldri lagna
  • Niðurtekt og uppsetningu tengiskápa
  • Frágang strengja í skurðum

Rarik mun jafnframt sjá um lagningu strengja og jarðvíra ásamt tengivinnu.

Helstu magntölur eru:

  • Tengiskápar: 2 stk.
  • Raflagnir: 210 metrar

Tilboð opnuð í júní

Útboðsgögn eru aðgengileg á útboðsvef Borgarbyggðar í gegnum Ajour útboðskerfið frá 19. maí 2026. Sækja má þau hér.

Skilafrestur tilboða er til klukkan 10:00 þann 5. júní 2026.

Umsjónaraðili útboðsins er Hlynur Ólafsson, verkefnastjóri framkvæmda hjá Borgarbyggð.

Heimild: Borgarbyggð