Home Fréttir Í fréttum Vetrar­þjón­usta 2026-2029, Steinar – Kirkju­bæjarklaustur – Opnun útboðs

Vetrar­þjón­usta 2026-2029, Steinar – Kirkju­bæjarklaustur – Opnun útboðs

134
0

Opnun útboðs:

Vegagerðin býður hér með út vetrarþjónustu, þ.e. snjómokstur og hálkuvarnir með vörubifreið, á Suðursvæði.

Helstu magntölur fyrir hvert tímabil eru:
Akstur vörubifreiða á snjómokstursleiðum er áætlaður 43.000 km á ári

Gildistími samnings er þrjú ár, þ.e. veturna 2026-2029. Heimild er til framlengingar samnings í allt að tvö ár með samþykki beggja aðila, eitt ár í senn,

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign  frá og með föstudeginum 3. apríl 2026 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 12. maí 2026.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.

Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.