Home Fréttir Í fréttum Brú yfir Djúpafjörð boðin út í næstu viku

Brú yfir Djúpafjörð boðin út í næstu viku

44
0
Brattur og hlykkjóttur fjallvegur um Ódrjúgsháls er meðal þess sem ökumenn munu sleppa við þegar brú yfir fjörðinn rís. Ríkisútvarpið ohf – Jóhannes Jónsson

Vegagerðin ætlar að bjóða út 200 metra stálbogabrú, sem verður síðasti liður í vegbótum á sunnanverðum Vestfjörðum, í næstu viku.

Vegagerðin stefnir á að bjóða út byggingu rúmlega 200 metra langrar netbogabrúar yfir Djúpafjörð á sunnanverðum Vestfjörðum í næstu viku.

„Undirbúningur fyrir smíði bogabrúar yfir Djúpafjörð hefur staðið yfir um langt skeið, enda um vandasamt verkefni að ræða. Brúin verður af sambærilegri gerð og brýrnar yfir Mjóafjörð í Ísafjarðardjúpi og Eldvatn í Skaftártungu, nema hún verður bæði lengri og hærri en þær,“ segir í tilkynningu Vegagerðarinnar.

Tvær steyptar brýr yfir Djúpafjörð og Gufufjörð eru þegar í vinnslu og þeim framkvæmdum á að ljúka um áramót. Brúin yfir Djúpafjörð er lokahnykkurinn í vegbótum á Vestfjarðavegi 60 um sunnanverða Vestfirði.

Brúin verður átta metrum yfir sjávarmáli og hægt verður að sigla undir hana. Áætlað er að brúin ásamt vegtengingum frá Hallsteinsnesi yfir í Skálanes verði tilbúin í lok árs 2028.

Heimild: Ruv.is