
Vanskil og hagkerfið kólnar hratt
Samtök iðnaðarins (SI) telja að peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands eigi að halda stýrivöxtum óbreyttum þegar næsta vaxtaákvörðun verður kynnt 19. ágúst.
Samtökin segja hagkerfið kólna hratt og vara við því að frekari vaxtahækkun geti aukið á samdrátt, ekki síst í byggingariðnaði. Kemur þetta fram í tilkynningu sem samtökin sendu frá sér í gær.
Meginvextir Seðlabankans eru nú 7,75% eftir tvær vaxtahækkanir á árinu, í mars og maí, sem samtals námu 0,5 prósentustigum. Verðbólga mældist 5,3% í júlí og er því enn talsvert yfir 2,5% verðbólgumarkmiði Seðlabankans.
Heimild: Mbl.is
Efni: Vanskil og hagkerfið kólnar hratt











