Home Fréttir Í fréttum Undirbúa nýja uppbyggingu og íbúðir á Stjórnarráðsreitnum

Undirbúa nýja uppbyggingu og íbúðir á Stjórnarráðsreitnum

239
0
Undirbúa nýja uppbyggingu og íbúðir á Stjórnarráðsreitnum
Mynd: Reykjavíkurborg

Undirbúa nýja uppbyggingu og íbúðir á Stjórnarráðsreitnum

Unnið verður áfram að nýju deiliskipulagi fyrir Stjórnarráðsreitinn í miðborg Reykjavíkur þar sem gert er ráð fyrir blandaðri uppbyggingu með íbúðum, ráðuneytum, opinberri þjónustu, verslun og menningarstarfsemi. Nýtt torg á að verða hjarta reitsins og umfangsmiklar breytingar eru fyrirhugaðar á götum og almenningsrýmum.

Undirbúa nýja uppbyggingu og íbúðir á Stjórnarráðsreitnum

Skipulagslýsing fyrir Stjórnarráðsreitinn var lögð fram að nýju á fundi umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkur 12. ágúst að loknu kynningarferli. Lýsingin var kynnt frá 8. maí til 5. júní og bárust umsagnir um hana.

Meirihluti Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknarflokks lagði við afgreiðslu málsins áherslu á að næsta skref yrði að vinna nýtt deiliskipulag fyrir Stjórnarráðsreitinn.

Meirihlutinn telur reitinn mikilvægan uppbyggingarreit í hjarta borgarinnar og þar gefist tækifæri til að skapa blandaða og lifandi miðborgarbyggð þar sem stjórnsýsla, þjónusta, menningarstarfsemi og búseta fari saman.

Tölvumynd: T.ark og SP(R)INT Studio,

Íbúðir á austurhluta reitsins

Stjórnarráðsreiturinn afmarkast af Lindargötu, Ingólfsstræti, Skúlagötu og Klapparstíg. Markmiðið er að þróa svæðið til framtíðar fyrir blandaða starfsemi Stjórnarráðs Íslands, opinbera og almenna þjónustu, menningarstarfsemi og búsetu.

Samkvæmt skipulagslýsingunni er reitnum skipt upp í nokkur uppbyggingarsvæði.

Á svæðum E og G er gert ráð fyrir íbúðum, auk möguleika á verslun og þjónustu á jarðhæðum þar sem það á við. Á svæði F er gert ráð fyrir annaðhvort íbúðarhúsi eða hóteli í mælikvarða Skúlagötu.

Á svæðum A og B er hins vegar gert ráð fyrir skrifstofuhúsnæði fyrir ráðuneyti og eftir atvikum ríkisstofnanir. Þar verður lögð áhersla á endurnýtingu eldri bygginga og tengingu nýbygginga við núverandi hús. Svæði C og D verða ætluð opinberri starfsemi og þjónustu sem ætlað er að virkja borgarrýmið.

Lagt er upp með fjölbreyttar húsagerðir og mismunandi stærðir og herbergjafjölda íbúða. Nýbyggingar eiga jafnframt að falla að byggðarmynstri og yfirbragði miðborgarinnar, enda er reiturinn innan svæðis sem nýtur hverfisverndar.

Skipting svæða innan Stjórnarráðsreits. Mynd: Reykjavíkurborg

Nýtt torg verði hjarta Stjórnarráðsreitsins

Mikil áhersla verður lögð á almenningsrými við uppbygginguna.

Gert er ráð fyrir að hjarta reitsins verði við gatnamót Sölvhólsgötu og Skuggasunds. Þar á að verða opið torg sem dragi að sér mannlíf og verði miðpunktur svæðisins.

Sölvhólsgata verður meginæð reitsins og á að tengja saman borgarvefinn, opinberar byggingar og græn svæði. Inn á milli bygginganna eiga að myndast grænir garðar og dvalarsvæði fyrir íbúa, starfsfólk og gesti.

Smiðjustígur og Skuggasund framlengd

Skipulagið gerir einnig ráð fyrir breytingum á gatnakerfi svæðisins.

Smiðjustígur verður framlengdur frá Lindargötu að Skúlagötu og Skuggasund sömuleiðis framlengt að Skúlagötu. Almennur akstur um Skuggasund leggst af.

Sölvhólsgötu verður breytt í samrými fyrir akandi og óvarða vegfarendur með aðgangsstýringu. Jafnframt verður hugað að aðkomu að bílastæðakjallara fyrir starfsfólk Stjórnarráðsins frá Skúlagötu.

Tölvumynd: T.ark og SP(R)INT Studio,

Stefnt að nýju deiliskipulagi á þessu ári

Samkvæmt tímaáætlun skipulagslýsingarinnar var gert ráð fyrir að vinna tillögu að nýju deiliskipulagi frá apríl og fram í júlí og kynna tillöguna í umhverfis- og skipulagsráði í ágúst eða september.

Þá er miðað við að tillagan verði auglýst, tekin aftur til afgreiðslu að loknu athugasemdaferli og samþykkt í umhverfis- og skipulagsráði og borgarráði í nóvember. Samkvæmt áætluninni gæti nýtt deiliskipulag síðan verið staðfest í desember 2026.

Skipulagsvinnan byggir á vinningstillögu T.ark og SP(R)INT Studio, úr samkeppni sem haldin var árið 2018 um framtíð Stjórnarráðsreitsins.

Heimild: Reykjavíkurborg

Efni: Undirbúa nýja uppbyggingu og íbúðir á Stjórnarráðsreitnum