Home Fréttir Í fréttum Vaðölduver gangsett í næstu viku

Vaðölduver gangsett í næstu viku

92
0
Vaðölduver gangsett í næstu viku
Í útsýnisstaðnum við Vaðölduver má sjá tölvugerða mynd af framtíðarútliti orkuversins. sunnlenska.is/Guðmundur Karl

Vaðölduver gangsett í næstu viku

Vaðölduver, fyrsta vindorkuver landsins, verður gangsett næstkomandi þriðjudag. Þar eru komnar upp fjórtán vindmyllur af þeim 28 sem verða í verinu.

Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra, mun gangsetja Vaðölduver við hátíðlega athöfn þann 15. september.

Vindmyllurnar voru fluttar í pörtum frá Þorlákshöfn að Vaðöldu í sumar og lauk flutningunum í lok júlí. Samsetningu síðustu myllunnar lauk í lok ágúst og síðan hafa staðið yfir prófanir og frágangur búnaðar.

Á næsta ári bætast aðrar fjórtán vindmyllur við og verða þær þá alls 28.

Heimild: Sunnlenska.is

Sjá eldri frétt á BYGGINGAR.IS: 190 tonna spennir kominn í Vaðölduver

Efni: Vaðölduver gangsett í næstu viku