
Sprengingar hefjast í Arnarlandi vegna tæplega 793 milljóna gatnagerðar
Borun og sprengingar vegna uppbyggingar Arnarlands í Garðabæ hefjast föstudaginn 11. september. Vinnan er hluti af umfangsmikilli gatnagerð og lagningu veitukerfa á svæðinu þar sem Grafa og grjót ehf. átti lægsta samþykkta tilboðið, tæpar 793 milljónir króna.
Garðabær greinir frá því að gert sé ráð fyrir að borunar- og sprengivinnu ljúki um tveimur mánuðum eftir að hún hefst. Ekki verði þó sprengt alla daga á tímabilinu.
Öll sprengiskot verða byrgð með sprengimottum til að koma í veg fyrir grjótkast. Þá verða titringsmælar settir upp til að fylgjast með áhrifum sprenginganna og tryggja að titringur haldist innan þeirra marka sem reglur gera ráð fyrir. Áður en sprengt er verða gefin þrjú stutt hljóðmerki og að jafnaði líður um ein mínúta þar til skoti er hleypt af. Eitt langt hljóðmerki gefur síðan til kynna að sprengingu sé lokið.
Grafa og grjót með 792,8 milljóna verk
Sprengingarnar eru hluti af útboðsverkinu „Arnarland – Gatnagerð og veitulagnir“. Bæjarráð Garðabæjar samþykkti í júní að taka tilboði Gröfu og grjóts ehf. að fjárhæð 792.848.876 krónur.
Kostnaðaráætlun verkkaupa var 782.306.879 krónur og var tilboð Gröfu og grjóts því 101,3% af áætlun. Loftorka Reykjavík bauð 813,7 milljónir króna og Háfell 822,2 milljónir.
Verkið nær meðal annars til gatnagerðar, landmótunar og lagningar fráveitu- og neysluvatnslagna auk lagna fyrir hitaveitu, rafveitu og fjarskipti. Samkvæmt útboðsupplýsingum Garðabæjar er áætlaður skiladagur verksins 1. apríl 2027.
Framkvæmdir á svæðinu hófust í ágúst. Fyrst var unnið að gerð vinnuvegar innan framkvæmdasvæðisins en Garðabær tilkynnti 25. ágúst að umfangsmeiri jarðvinna væri að hefjast með aukinni umferð vinnuvéla og vörubíla. Aðkoma að vinnusvæðinu er við gatnamót Fífuhvammsvegar og Arnarsmára.
Um 450 íbúðir og 37 þúsund fermetrar atvinnuhúsnæðis
Uppbyggingin í Arnarlandi er mun umfangsmeiri en gatnagerðarverkið eitt og sér. Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkti deiliskipulag svæðisins í mars 2025. Skipulagssvæðið er um 8,9 hektarar og afmarkast af Hafnarfjarðarvegi, Fífuhvammsvegi og Arnarnesvegi.
Samkvæmt samþykktu skipulagi er gert ráð fyrir um 450 íbúðum og um 37.000 fermetrum af verslunar-, skrifstofu- og þjónusturými. Byggðin verður að mestu í tveggja til sex hæða húsum en sérstök kennileitisbygging fyrir atvinnustarfsemi getur orðið allt að sjö hæðir.
Einnig er gert ráð fyrir atvinnu- og þjónustustarfsemi næst Hafnarfjarðarvegi, heilsuklasa, miðlægu torgi, grænum svæðum og tengingu við fyrirhugaða Borgarlínu.
Umsjón og eftirlit með gatnagerðinni var einnig boðið út. Bæjarráð samþykkti tilboð Verkfræðistofu Reykjavíkur að fjárhæð 26,8 milljónir króna, en kostnaðaráætlun fyrir eftirlitið hafði verið 36,9 milljónir.
Heimild: Garðabær
Sjá eldri frétt á BYGGINGAR.IS: Grafa og grjót ehf. lægstbjóðandi við gatnagerð og veitulagnir í Arnarlandi
Efni: Sprengingar hefjast í Arnarlandi vegna tæplega 793 milljóna gatnagerðar











