Home Fréttir Í fréttum Þrjú fyrirtæki fá pípulagningaverk í meðferðarkjarna Nýs Landspítala

Þrjú fyrirtæki fá pípulagningaverk í meðferðarkjarna Nýs Landspítala

531
0
Þrjú fyrirtæki fá pípulagningaverk í meðferðarkjarna Nýs Landspítala
Á mynd frá vinstri: Ólafur M. Birgisson, sviðsstjóri framkvæmdasviðs NLSH, Atli Freyr Bergsson, Íslenskir pípulagningaverktakar ehf, Gunnar Svavarsson, framkvæmdastjóri NLSH, Atli Rúnar Óskarsson, Íslenskir pípulagningaverktatar ehf., Magnús Björn Bragason, Aðallagnir ehf., Árni Gunnar Ingþórsson, Rörtöngin ehf., Viktor Einarsson, Rörtöngin ehf.

Þrjú fyrirtæki fá pípulagningaverk í meðferðarkjarna Nýs Landspítala

Nýr Landspítali ohf. hefur samið við Aðallagnir ehf., Rörtöngina ehf. og Íslenska pípulagningaverktaka ehf. um pípulagnir í nýjum meðferðarkjarna við Hringbraut. Verkið nær frá kjallara og upp á fjórðu hæð meðferðarkjarnans.

Verksamningurinn var undirritaður 20. ágúst 2026 samkvæmt upplýsingum frá Nýjum Landspítala.

Um er að ræða umfangsmikinn verkþátt við uppbyggingu tæknikerfa meðferðarkjarnans, en samningurinn tekur til pípulagna frá kjallara byggingarinnar og upp á fjórðu hæð.

Pípulagnir í stórum hluta meðferðarkjarnans

BYGGINGAR.IS hefur áður fjallað um útboðsferlið vegna pípulagnanna.

Í forvali vegna verksins kom fram að um væri að ræða pípulagningavinnu frá kjallara K2 og upp á fjórðu hæð. Verkefnið nær meðal annars til neysluvatnslagna, þrifatækja, frárennslislagna, hitalagna, kælilagna og slökkvikerfa.

Jafnframt var gert ráð fyrir möguleika á að verktaki tæki að sér uppsetningu lyfjaloftslagna.

Meðferðarkjarninn er um 70 þúsund fermetrar að stærð á átta hæðum, þar af tveimur neðanjarðar. Pípulagningaútboðið nær samkvæmt fyrri útboðsgögnum til allt að um 55 þúsund fermetra byggingarinnar.

Fimm fyrirtæki tóku þátt í forvali

Í október 2025 var opnað forval vegna pípulagningaverksins. Fimm fyrirtæki óskuðu þá eftir þátttöku:

  • Aðallagnir ehf.
  • AH pípulagnir ehf.
  • Alhliða pípulagnir ehf.
  • Landslagnir ehf.
  • Rennsli ehf.

Nú liggur fyrir að samið hefur verið við Aðallagnir, Rörtöngina og Íslenska pípulagningaverktaka um framkvæmd verksins.

Samningurinn er enn einn stór verkþátturinn sem færist yfir á framkvæmdastig við innanhússfrágang og uppsetningu tæknikerfa meðferðarkjarnans.

Fyrri frétt BYGGINGAR.IS – Opnun í forvali vegna pípulagna í meðferðarkjarna

Heimild – NLSH.is

Efni: Þrjú fyrirtæki fá pípulagningaverk í meðferðarkjarna Nýs Landspítala