Home Fréttir Í fréttum Arion lánar fyrir upp­byggingu í Þjórsár­dal

Arion lánar fyrir upp­byggingu í Þjórsár­dal

126
0
Arion lánar fyrir upp­byggingu í Þjórsár­dal
Fremri röð: Benedikt Gíslason og Sigríður Margrét Oddsdóttir. Aftari röð: Margrét Ingþórsdóttir, Hákon Hrafn Gröndal og Guðmunda Ósk Kristjánsdóttir frá Arion, ásamt Helga Júlíussyni, fjármálastjóra Bláa lónsins. Ljósmynd: Aðsend mynd

Arion lánar fyrir upp­byggingu í Þjórsár­dal

„Um er að ræða eina umfangsmestu fjárfestingu sem í hefur verið ráðist í íslenskri ferðaþjónustu.“

Rauðukambar ehf., dótturfélag Bláa Lónsins hf., hafa undirritað lánssamning við Arion banka um fjármögnun áframhaldandi uppbyggingar í Þjórsárdal.

Verkefnið nær meðal annars til Fjallabaðanna, hótelsins Mountain Retreat í Rauðukömbum, Gestastofu Þjórsárdals auk smáhýsa og tjaldsvæðis við Selhöfða.

„Um er að ræða eina umfangsmestu fjárfestingu sem í hefur verið ráðist í íslenskri ferðaþjónustu,“ segir í fréttatilkynningu.

Fjárfesting Bláa lónsins í Þjórsárdal er metin á um 20 milljarða króna og kostnaður við endurbyggingu Fontana hleypur á milljörðum, eins og kom fram í nýlegri umfjöllun Viðskiptablaðsins.

Bláa lónið undirritaði samninga við íslenska ríkið um uppbyggingu og rekstur þjónustumiðstöðvar og ferðaþjónustu í Þjórsárdal í maí síðastliðnum.

Stefnt er að því að fyrsti hluti starfseminnar muni opna sumarið 2027 og gert er ráð fyrir að verkefnið verði að fullu komið í rekstur vorið 2028. Fram­kvæmdir eru þegar hafnar og í fullum gangi.

„Þjórsárdalur er eitt merkasta náttúru- og sögusvæði Íslands. Uppbyggingin byggir á langtímasýn um að auka aðgengi að náttúru og sögu dalsins og styrkja hann sem heildstæðan áfangastað, með virðingu fyrir sérstöðu svæðisins að leiðarljósi.“

Heimild: Vb.is

Efni: Arion lánar fyrir upp­byggingu í Þjórsár­dal