
Þjóðarhöllin á að vera klár í janúar 2030
Borgarráð hefur samþykkt verksamning milli Þjóðarhallar ehf. og ÍAV hf. um hönnun og byggingu Þjóðarhallar í Laugardal. Verktaki á að skila fullbúinni þjóðarhöll í janúar 2030. Ísland verður meðal gestgjafa á HM í handbolta 2031.
Borgarráð samþykkti á fundi sínum í morgun fyrirliggjandi verksamning milli Þjóðarhallar ehf. og ÍAV hf. um hönnun og byggingu Þjóðarhallar í Laugardal. Umsamið verð fyrir verkið eru rúmir 16,8 milljarðar króna að meðtöldum virðisaukaskatti.
Í sumar gekk Þjóðarhöll ehf. að tilboði Íslenskra aðalverktaka og samstarfsfyrirtækja þeirra um hönnun og byggingu Þjóðarhallar í Laugardal.
Þjóðarhöllin á samkvæmt verksamningi að verða tilbúin ekki síðar en 25. janúar 2030. Höllin á að taka 8.600 manns í sæti.
Nú er tryggt að Reykjavík er höfuðborg íþróttanna
„Þetta er risastór áfangi í þessu verkefni sem að hefur tekið fjögur ár að koma á þennan stað,“ segir Einar Þorsteinsson, formaður borgarráðs og borgarfulltrúi Framsóknarflokksins.
„Nú er tryggt að Reykjavík er höfuðborg íþróttanna,“ segir Einar.

RÚV / Ragnar Visage
HM í handbolta 2031 á Íslandi ef allt gengur eftir
Meðal fyrstu verkefna þjóðarhallarinnar, gangi áform um byggingu eftir, er að vera meðal gestgjafa á HM 2031 í handbolta, ásamt Noregi og Danmörku.
„Það liggur á að byggja því að það er gert ráð fyrir því að HM í handbolta verði hérna 2031,“ segir Einar.
Einn riðill verður spilaður hér á landi og er ný þjóðarhöll grunnforsenda þess að Ísland haldi mótið.
Hlutur Reykjavíkurborgar í verkinu er 45% eða 8,7 milljarðar. Hlutur ríkissins er 55%.
„Það er mikið fagnaðarefni að nú sé loks komið að því að gera verksamning um hönnun og byggingu nýrrar Þjóðarhallar í Laugardal. Aðdragandinn hefur verið langur,“ segir í bókun borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins.
Heimild: Ruv.is
Sjá eldri frétt á BYGGINGAR.IS: Íslenskir aðalverktakar valdir til að hanna og byggja þjóðarhöll
Efni: Þjóðarhöllin á að vera klár í janúar 2030











