
Taka höndum saman: 1.800 fermetra stækkun
Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, og Vilhjálmur Árnason, bæjarstjóri Reykjanesbæjar fyrir hönd sveitarfélaga á Suðurnesjum, hafa undirritað viljayfirlýsingu um stækkun verknámshúss Fjölbrautaskóla Suðurnesja.
Undirritunin fór fram á 50 ára afmælishátíð skólans um helgina. Gert er ráð fyrir að framkvæmdir hefjist upp úr áramótum við 1.800 fermetra stækkun á verknámshúsi skólans.
Undirbúningur að stækkun verknámshúss Fjölbrautaskóla Suðurnesja hefur staðið yfir undanfarin ár. Viljayfirlýsingin nú leggur grunninn að því að hefja framkvæmdir á grundvelli frumathugunar Framkvæmdasýslu – Ríkiseigna. Samkvæmt viljayfirlýsingunni mun Reykjanesbær fyrir hönd Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum hafa umsjón með framkvæmdunum, að því er ráðuneytið greinir frá í tilkynningu.
Heimild: Mbl.is











