Ný flóðljós á Hásteinsvelli í Vestmannaeyjum
Ný flóðljós á Hásteinsvelli: Möstrin risin og stefnt á formlega vígslu í október. Framkvæmdir við uppsetningu á nýjum flóðljósum við Hásteinsvöll hafa gengið vel að undanförnu.
Möstrin eru nú öll risin og sjálfur ljósabúnaðurinn er kominn upp og í virkni. Þetta er stórt skref í uppbyggingu íþróttamannvirkja í sveitarfélaginu.
Enn stendur þó yfir lokafrágangur og þá á sérstaklega eftir að ljúka jarðvegsfrágangi við möstrin sjálf, ásamt því að koma fyrir ljósastýringu (dimmer) fyrir búnaðinn.
Áætlað er að búnaðurinn fyrir ljósastýringuna komi til okkar í október og þá verður verkinu að fullu lokið. Þangað til stýringin kemur er eingöngu hægt að kveikja á ljósunum á fullum styrk.

Þegar búnaðurinn verður kominn í fulla virkni verður hægt að stilla lýsinguna eftir þörfum:
500 LUX (Fullur styrkur): Ætlað fyrir keppnisleiki í sjónvarpi. (Þetta er eina stillingin sem er virk fram í október).
300 LUX: Keppnislýsing fyrir leiki í meistaraflokki.
200 LUX: Æfingarlýsing fyrir hefðbundnar æfingar og keppnislýsing fyrir yngri flokka.
Að öllum framkvæmdum loknum er ætlunin að halda formlega vígslu á flóðljósunum til að fagna þessum áfanga með bæjarbúum. Stefnt er að því að vígslan fari fram í október og verður hún auglýst nánar á miðlum sveitarfélagsins þegar nær dregur.
Heimild: Vestmannaeyjarbær
Sjá eldri frétt á BYGGINGAR.IS: Staða framkvæmda á Hásteinsvelli í Vestmannaeyjum
Efni: Ný flóðljós á Hásteinsvelli í Vestmannaeyjum












