Home Fréttir Í fréttum Stefnt á 9 milljarða framkvæmdir

Stefnt á 9 milljarða framkvæmdir

89
0
Stefnt á 9 milljarða framkvæmdir
Horft til vesturs inn Reyðarfjörð yfir þann hluta hafnarsvæðisins sem byggður verður upp og stækkaður. Ljósmynd/Fjarðabyggðarhafnir

Stefnt á 9 milljarða framkvæmdir

Fram undan er mikil uppbygging hafnarmannvirkja í Fjarðabyggð og standa vonir til að þannig takist að renna enn sterkari stoðum undir atvinnulífið á svæðinu.

Ragnar Sigurðsson, formaður bæjarráðs og oddviti Sjálfstæðisflokksins í Fjarðabyggð, segir ítarlegri skipulagsgreiningu nú lokið og verið sé að leggja lokahönd á áætlun um uppbyggingu Mjóeyrarhafnar til ársins 2040.

Hagaðilum var boðið til kynningarfundar á þriðjudag þar sem helstu niðurstöður skipulagsgreiningar voru kynntar og rætt var um næstu skref í þróun hafnarinnar.

Mjóeyrarhöfn er við suðurenda álvers Alcoa Fjarðaáls, um 3 km austur af Reyðarfjarðarkaupstað, en höfnin er nú þegar næststærsta vöruútflutningshöfn Íslands. „Fjarðabyggðarhafnir eru, sem ein heild, önnur stærsta höfn landsins og ná, auk Mjóeyrarhafnar, yfir þrjár af fjórum stærstu fiskihöfnum landsins,“ útskýrir Ragnar.

Heimild: Mbl.is