Starfsmaður reyndi að bregðast við eldsvoðanum
Betur fór en á horfðist þegar eldur kom upp í trésmíðaverkstæði við Gylfaflöt 3 í Grafarvogi í morgun.
Maðurinn sem fluttur var á slysadeild eftir eldsvoðann er ekki talinn alvarlega slasaður.
Samkvæmt upplýsingum frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins var hann starfsmaður á verkstæðinu og reyndi að bregðast við aðstæðunum eftir fremsta megni.
Slökkviliðið staðfesti jafnframt í samtali við mbl.is að eldurinn hefði kviknað í útsogskerfi hússins og ekki væri við neinn að sakast.
Heimild: Mbl.is












