Home Fréttir Í fréttum Fyrsta húsið í Hamborg í Fljótsdal risið

Fyrsta húsið í Hamborg í Fljótsdal risið

90
0
Fyrsta húsið í Hamborg í Fljótsdal risið
Síðasta sperran í húsinu var sett í morgun. Mynd: GG

Fyrsta húsið í Hamborg í Fljótsdal risið

Fyrsta húsið, sem byggt verður í Hamborg, nýju þéttbýli í Fljótsdal, er risið. Ákveðið hefur verið að setja upp fjarvarmaveitu til að hita húsin þar. Ár er í dag  frá fyrstu formlegu skóflustungunni á svæðinu.

Það var Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, sem tók skóflustunguna að því sem átti að verða fyrsta húsið í Hamborg. Það átti að byggja á vegum einstaklings en vegna persónulegra aðstæðna hafa þau áform tafist.

Lokið var við að reisa húsið í morgun. Um er að ræða einbýlishús byggt á vegum Fljótsdalshrepps. Það er sérstætt fyrir þær sakir að vera fyrsta íbúðarhúsið á Íslandi sem er nánast alfarið byggt úr íslenskum viði en fyrirtækið Skógarafurðir í Fljótsdal varð í byrjun sumars fyrsta íslenska fyrirtækið til að hljóta vottun til að framleiða burðarvið.

Samkvæmt áætlunum á húsið að vera 80% tilbúið fyrir lok þessa árs. Alls er búið að úthluta sex lóðum í Hamborg og fyrirspurnir hafa borist um fleiri.

Séð út yfir Hamborg. Mynd: GG

Ákveðið að leggja hitaveitu

Áður en Halla tók skóflustunguna var jarðvegsvinna hafin. Aðeins munaði nokkrum dögum að klæðning yrði lögð á götur síðasta haust en þá frysti. Það gaf önnur tækifæri því sveitarstjórn Fljótsdalshrepps ákvað að leggja hitaveitulagnir í öll húsin og er von á efni í þær í næstu viku.

Hitaveitulagnir tengjast við miðlæga varmadælu. Búið er að finna tæplega 10 gráðu heitt vatn á svæðinu sem nýtist fyrir veituna. Á næstu dögum verður vatnið rannsakað nánar og í framhaldi af því er hægt að panta búnaðinn. Fjarvarmaveitan verður hýst í húsi sem jafnframt nýtist sem áhaldahús fyrir Fljótsdalshrepp. Verið er að hanna húsið og stefnt á að reisa það í haust.

Í sumar voru líka lagðar lagnir fyrir neysluvatn. Vatnið er tekið úr áreyrum Bessastaðaár, neðan Hamborgar og leitt upp í fjall í 50.000 lítra tank. Frá honum liggur þrýstipípa niður í byggðina.

Bogi Kárason, verkefnisstjóri Fljótsdalshrepps í Hamborg. Mynd: GG

Hugsað til framtíðar frá byrjun

Í vor var líka ákveðið að færa skólphreinsistöð Hamborgar frá byggðinni niður fyrir þjóðveginn. Þá þurfti að bora lagnirnar undir veginn sem tókst vel. Skólphreinsistöðin styður við fimm þrepa hreinsun þótt síðasta þrepið verði ekki virkjað fyrr en krafa verður gerð um það.

„Það er alltaf viðbúið að reglur verði hertar síðar meir og þá er stöðin búin undir það. Að færa stöðina niður fyrir veginn tafði aðeins framvindu verksins en ég hef trú á að það sé rétt ákvörðun til framtíðar. Það er með þetta eins og annað í Hamborg, það er strax hugsað til framtíðar. Samstarf við hagsmunaaðila hefur líka verið vandað. Svona hefur verkið verið unnið, allt frá staðarvalinu,“ segir Bogi Kárason verkefnastjóri í Hamborg.

Halla Tómasdóttir, forseti, tók fyrstu skóflustunguna fyrir sléttu ári. Mynd: GG

Helstu veitur í gang fyrir veturinn

Stefnt er að því að koma skólphreinsistöðinni og vatnsveitunni í gagnið fyrir veturinn. Bjartsýnustu áætlanir gera einnig ráð fyrir að hitaveitan verði gangsett en til þess þarf allt að ganga upp. Í fyrra var lokið við allar götulagnir, svo sem fráveitu, fjarskiptalagnir og raflagnir. Götuljósin eru orðin virk.

Fornleifar voru skráðar í Hamborg áður en framkvæmdir hófust og síðan viðhaft framkvæmdaeftirlit. Ljóst er orðið að kanna þarf fornleifar nánar á nokkrum lóðum. Bogi segir að þær verði rannsakaðar eins og þörf er á af sveitarfélaginu þannig að lóðarhafar þurfi ekki að leggja út í slíkar rannsóknir sjálfir.

„Ég er búinn að hafa mjög gaman af þessu verkefni. Það er unnið af metnaði og lögð áhersla á að allt sé vel gert,“ segir Bogi að lokum.

Horft inn yfir Hamborg. Mynd: GG

Heimild: Austurfrett.is

Efni: Fyrsta húsið í Hamborg í Fljótsdal risið