Skólabygging sett á söluskrá
Stórhýsi á Laugavatni, þar sem áður var starfsemi Húsmæðraskóla Suðurlands og seinna íþróttakennaraskorar Háskóla Íslands, er komið á söluskrá.
Húsið, sem er á tveimur hæðum með kjallara, er um 3.400 fermetrar að flatarmáli, er inni í miðju þorpi og stendur nærri flæðarmáli vatnsins sem byggðin er kennd við. Húsið var reist árið 1966 og þar var skólahald í áratugi, en síðustu misseri hefur lítil starfsemi verið þar.
Byggingin hefur marga möguleika
„Byggingin hefur marga möguleika og áhuginn er greinilegur,“ segir Ólafur Björnsson, lögmaður á Selfossi, sem annast söluna. Húsið er í eigu ríkisins og í umsjón Framkvæmdasýslunnar – Ríkiseigna og ásett verð er 795 milljónir króna.
Í húsinu eru skrifstofur, móttökurými, rúmgóð salarkynni, tvö eldhús, 28 tveggja manna herbergi, skólastofur og vinnurými, svo eitthvað sé nefnt.
Tiltekið er í sölukynningu að byggingin henti vel fyrir starfsemi í ferðaþjónustu, skólahald og heilsutengda þjónustu.
Heimild: Mbl.is












