Home Fréttir Í fréttum ÍAV lýkur framkvæmdum við Vör, nýja farþegamiðstöð Faxaflóahafna í Reykjavík

ÍAV lýkur framkvæmdum við Vör, nýja farþegamiðstöð Faxaflóahafna í Reykjavík

62
0
ÍAV lýkur framkvæmdum við Vör
Mynd: ÍAV

ÍAV lýkur framkvæmdum við Vör, nýja farþegamiðstöð Faxaflóahafna í Reykjavík

ÍAV lýkur framkvæmdum við Vör, nýja farþegamiðstöð Faxaflóahafna í Reykjavík. Húsið var formlega opnað föstudaginn 29. maí þegar Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri Reykjavíkur og Gunnar Tryggvason hafnarstjóri Faxaflóahafna klipptu á borðann við hátíðlega athöfn.

Íslenskir aðalverktakar (ÍAV) hafa lokið framkvæmdum við Vör, nýja fjölnota farþegamiðstöð Faxaflóahafna við Viðeyjarsund í Reykjavík. Verkefnið var afhent á réttum tíma og var mannvirkið tilbúið fyrir komu fyrsta skemmtiferðaskips sumarsins.

Framkvæmdin var umfangsmikil og krafðist náinnar samvinnu hönnuða, verkkaupa, undirverktaka, eftirlitsaðila og starfsfólks ÍAV. Með öflugri verkstjórn, fagmennsku og lausnamiðaðri nálgun tókst að ljúka verkinu samkvæmt áætlun.

Ný miðstöð fyrir farþega og viðburði

Vör markar tímamót í móttöku skemmtiferðaskipa í Reykjavík og mun bæta aðstöðu fyrir farþega, landamæraþjónustu og öryggismál á hafnarsvæðinu.

Yfir sumartímann verður húsið nýtt sem farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip sem koma til Reykjavíkur. Utan háannatíma, frá október til mars, verður byggingin nýtt fyrir fjölbreytta viðburði.

Á annarri hæð hússins er glæsilegur veislusalur með aðstöðu fyrir allt að 2.000 gesti í standandi viðburðum og um 900 manns í sæti.

Nafnið Vör valið úr yfir 6.000 tillögum

Nafnið Vör varð fyrir valinu í opinni nafnasamkeppni þar sem yfir 6.000 tillögur bárust. Nafnið vísar til lendingar og skjóls við sjóinn og tengir mannvirkið við íslenska hafnarsögu og hlutverk þess sem móttökustað ferðalanga.

Mikilvæg viðbót við hafnarsvæði Reykjavíkur

Að sögn ÍAV er fyrirtækið stolt af þátttöku sinni í verkefninu sem telst mikilvægt framfaraskref fyrir Faxaflóahafnir og Reykjavíkurborg.

Vör er glæsileg viðbót við hafnarsvæðið og dæmi um hvernig fagleg framkvæmd, traust samstarf og skýr markmið geta skilað mannvirki sem þjónar bæði borgarbúum og gestum til framtíðar.

Heimild: IAV.is