Home Fréttir Í fréttum Skjálftinn við Nesjavelli á þekktri jarðskjálftasprungu

Skjálftinn við Nesjavelli á þekktri jarðskjálftasprungu

26
0
Skjálftinn við Nesjavelli á þekktri jarðskjálftasprungu
Skjálftavirkni er mjög algeng á þessum slóðum. RÚV – Lára Ómarsdóttir

Skjálftinn við Nesjavelli á þekktri jarðskjálftasprungu

Náttúruvársérfræðingur á Veðurstofu Íslands segir erfitt að segja til um hvort stór jarðskjálfti sem mældist við Nesjavelli í nótt sé fyrirboði um eitthvað meira. Lítil eftirskjálftavirkni hefur mælst.

Erfitt er að segja til um hvort stór jarðskjálfti sem mældist við Nesjavelli í nótt sé fyrirboði um eitthvað meira. Þetta segir Steinunn Helgadóttir, náttúruvársérfræðingur á Veðurstofu Íslands.

Jarðskjálfti af stærðinni 4,1 mældist við Nesjavelli þegar klukkuna vantaði tuttugu og fjórar mínútur í eitt í nótt. Nákvæm upptök jarðskjálftans voru þrjá og hálfan kílómetra norðaustur af Skeggja á Hengli.

Þetta var stærsti skjálftinn á Nesjavöllum frá árinu 1998 og fannst vel á suðvesturhorni landsins. Lítil eftirskjálftavirkni hefur mælst.

„Skjálftavirkni er mjög algeng á þessu svæði og skjálftinn varð á þekktri jarðskjálftasprungu. Þannig að þetta er allavega sá stærsti á þessari öld,“ segir Steinunn.

Jarðskjálftar sem urðu í Húsmúla fyrr í sumar gætu tengst skjálftanum í nótt.

„Skjálftarnir sem urðu fyrr í sumar við Húsmúla, þeir gætu náttúrulega leitt til spennulosunar á öðrum stöðum nálægt en hvort þeir séu tengdir er erfitt að segja á þessari stundu,“ segir Steinunn.

Heimild: Ruv.is