Ný brú yfir Gufufjörð tekur á sig mynd
Vinna stendur nú yfir við smíði nýrrar brúar yfir Gufufjörð á Vestfjörðum og er verkið vel á veg komið. Brúin verður um 130 metra löng og búið er að steypa flesta stöpla hennar en nú er unnið að undirslætti brúardekksins.
Áætluð verklok eru í ár en brúarsmíðin er hluti af umfangsmiklum vegabótum á þessum slóðum þar sem einnig er unnið að því að byggja 58 metra langa brú yfir Djúpafjörð við Grónes. Síðasti áfanginn í vegagerð um Gufudalssveit verður svo 250 metra löng stálbogabrú yfir Djúpafjörð.
Heimild: Mbl.is












