Home Í fréttum Undirskrift samninga utboda Samið við tvo verktaka vegna stækkunar Sigöldustöðvar

Samið við tvo verktaka vegna stækkunar Sigöldustöðvar

239
0
Samið við tvo verktaka vegna stækkunar Sigöldustöðvar
Fulltrúar DSD og Noell við undirritun samninga. Frá vinstri: Maximilian Hillinger, verkefnastjóri DSD Noell, Gereon Eiling, sölustjóri sama fyrirtækis, Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, Ásbjörg Kristinsdóttir, framkvæmdastjóri framkvæmda og Ólöf Rós Káradóttir, yfirverkefnastjóri. – Landsvirkjun

Samið við tvo verktaka vegna stækkunar Sigöldustöðvar

Landsvirkjun hefur samið við tvo verktaka vegna stækkunar á Sigöldustöð. Stefnt er á að nýr hverfill verði gangsettur áramótin 2029–2030.

Landsvirkjun hefur samið við tvo verktaka vegna stækkunar á Sigöldustöð. Samningarnir nema alls um 9,5 milljörðum króna, Ístak kemur að byggingum helstu mannvirkja vegna stækkunarinnar og þýska fyrirtækið DSD Noell GmbH vegna rista, loka og fallpípu.

Samningur Ístaks kveður á um tæpa 7,5 milljarða króna og samningur DSD Noell tæpa 2 milljarða. Uppgefnar upphæðir eru án virðisaukaskatts.

Núverandi stöðvarhús Sigöldu verður stækkað og reist þar ný viðbygging fyrir nýja 65 MW vélasamstæðu. Afl stöðvarinnar verður því aukið úr 150 MW í 250 MW. Sigöldustöð er ein sjö virkjana Landsvirkjunar á Þjórsársvæðinu.

65 MW verður bætt við núverandi afl stöðvarinnar.
RÚV / Ingvar Haukur Guðmundsson

Undirbúningsframkvæmdir við stækkun virkjunarinnar hófust í byrjun árs 2025 en haustið sama ár var leyfi til stækkunar á Sigölduvirkjun fellt úr gildi eftir kæru umhverfisverndarsamtakanna Náttúrugriða. Byggingarleyfi við virkjunina er í gildi og verður nýr hverfill tekinn í notkun áramótin 2029/2030.

Heimild: Ruv.is