
Mega skipta gjaldi í fernt
Bæjarráð Hafnarfjarðar hefur samþykkt að breyta reglum um greiðsluskilmála gatnagerðar- og byggingarréttargjalda á þann veg að nú er byggingaraðilum heimilt að skipta greiðslum í fernt í stað þess að rukka inn gjöldin í einu lagi líkt og verið hefur.
Í fundargerð bæjarráðs frá 25. júní sl. kemur fram að reglurnar gildi jafnt um sérbýli, fjölbýlishús, atvinnuhúsnæði, þróunarreiti sem og önnur byggingarverkefni. Greiðsludreifingin stendur öllum gjaldskyldum aðilum til boða, en greiðsludreifingin er háð því að byggingarleyfi eða samþykkt byggingaráform liggi fyrir, framkvæmdaaðili sé ekki í vanskilum við Hafnarfjarðarbæ, fullnægjandi tryggingar að mati bæjarins séu settar fyrir ógreiddum hluta gjalda, framkvæmdaáætlun liggi fyrir og að greiðsludreifing teljist ekki fela í sér ómálefnalega mismunun.
Heimild: Mbl.is











