Home Fréttir Í fréttum Samdráttur hjá Stjörnublikk eftir kaup á Samverki

Samdráttur hjá Stjörnublikk eftir kaup á Samverki

218
0
Samdráttur hjá Stjörnublikk eftir kaup á Samverki
Finnbogi Geirsson, forstjóri Stjörnublikks. Ljósmynd: Aðsend mynd

Samdráttur hjá Stjörnublikk eftir kaup á Samverki

Hagnaður Stjörnublikks dróst saman um nær 400 milljónir milli ára og tekjur um 23%.

Stjörnublikk hagnaðist um 134 milljónir króna árið 2025, samanborið við 530 milljónir árið áður. Tekjur félagsins drógust saman úr 3 milljörðum í 2,3 milljarða króna. Eigið fé nam tæpum 1,4 milljörðum í árslok. Eignir námu 1,7 milljörðum króna, samanborið við 1,9 milljarða króna árið áður.

Stjörnublikk keypti Glerverksmiðjuna Samverk á Hellu úr þrotabúi Kamba byggingavara í júní á síðasta ári. Stjörnublikk veitti Samverki 566 milljóna króna lán til kaupa á húsnæði, rekstrarfjármunum og lager við upphaf starfseminnar.

Skjáskot af Vb.is

Samverk skilaði 34 milljóna króna tapi á fyrsta rekstrarárinu undir Stjörnublikki. Tekjur námu 156 milljónum, eignir 602 milljónum og eigið fé var neikvætt um 33 milljónir í árslok. Ársverk hjá félaginu voru 7.

Finnbogi Geirsson er forstjóri og stofnandi Stjörnublikks og á jafnframt 65% hlut í félaginu. Stjórn Stjörnublikks leggur til að 200 milljónir króna verði greiddar í arð á árinu 2026.

Heimild: Vb.is

Efni: Samdráttur hjá Stjörnublikk eftir kaup á Samverki