Eigandi hússins, Gamma ehf., sótti um heimild til að breyta fjórum íbúðum á 2. og 3. hæð í hótelíbúðir en í umsögn skipulagsfulltrúa frá því í nóvember á síðasta ári var því hafnað. Annað hljóð var komið í strokkinn í nýju umsögninni sem dagsett er 11. ágúst 2026.
„Með hliðsjón af skýru orðalagi Aðalskipulags Reykjavíkur 2040, forsendum aðalskipulagsbreytingarinnar frá 2014, markmiðum breytingarinnar frá 2017 og almennum reglum um bann við afturvirkni íþyngjandi stjórnvaldsfyrirmæla verður að telja að fyrir hendi sé fullnægjandi stoð í Aðalskipulagi Reykjavíkur 2040 til að veita jákvæða umsögn vegna umsóknar um rekstrarleyfi fyrir gististarfsemi í flokki II-IV þegar um er að ræða óbreytta starfsemi í sama húsnæði og áður.“
Annað hús neðar á Bergstaðastræti ber sama húsnúmer og hefur einnig komist í fréttir vegna áforma eigenda þess. Eigandinn er einmitt Gamma ehf. Árið 2023 hafnaði skipulagsfulltrúi Reykjavíkur ósk eigenda um að rífa húsið og byggja í staðinn fjögurra hæða hús á lóðinni. Þar hefur verið ýmiss konar starfsemi í gegnum árin, svo sem gullsmíðaverkstæði, tískuvöruverslun og veitingastaðir.
Eigendur lögðu fram ástandsskýrslu verkfræðistofunnar Eflu þar sem sagði að húsið væri ónýtt. Ekki var fallist á niðurrif þar eð húsið væri aldursfriðað auk þess sem sögulegt rof yrði í götumynd og byggðarmynstri með fjögurra hæða byggingu á þessum slóðum.
Heimild: Mbl.is
Efni: Gefur nú grænt ljós á hótelíbúðir