Home Fréttir Í fréttum Saga nýs Landspítala skráð úr lofti

Saga nýs Landspítala skráð úr lofti

46
0
Saga nýs Landspítala skráð úr lofti
Þetta er drónamynd númer 350 og var hún tekin í síðustu viku. Hún sýnir vel þá gríðarlegu uppbyggingu sem hefur átt sér stað þarna á síðustu átta árum. Nú hillir undir lokin. Ljósmynd/Einar Haukur Reynis/NLSH

Saga nýs Landspítala skráð úr lofti

Regluleg myndataka af byggingasvæði nýs Landspítala er órjúfanlegur þáttur af starfseminni og er tilgangurinn bæði að skrá sögu framkvæmdanna en ekki síst að ná heildaryfirsýn á stöðuna hverju sinni.

Þetta kemur fram á heimasíðu Nýs Landspítala, NLSH. Mikilvægt sé að varðveita byggingasögu þessa mikla mannvirkis á þennan hátt.

Fysta skóflustungan að nýju þjóðarsjúkrahúsi við Hringbraut var tekin laugardaginn 13. október 2018, eða fyrir réttum átta árum.

Síðan þá hafa staðið yfir gríðarlegar framkvæmdir á Hringbrautarsvæðinu, líklega þær mestu í Íslandssögunni.

Heimild: Mbl.is

Sjá eldri frétt á BYGGINGAR.IS: Eykt ehf. lægst með 10.25 milljarða tilboð í rannsóknahús Nýs Landspítala

Efni: Saga nýs Landspítala skráð úr lofti