Home Fréttir Í fréttum Eykt ehf. lægst með 10.25 milljarða tilboð í rannsóknahús Nýs Landspítala

Eykt ehf. lægst með 10.25 milljarða tilboð í rannsóknahús Nýs Landspítala

492
0
Eykt ehf. lægst með 10.25 milljarða tilboð í rannsóknahús Nýs Landspítala
Mynd: NLSH.is

Eykt ehf. lægst með 10.25 milljarða tilboð í rannsóknahús Nýs Landspítala

Eykt ehf. átti lægsta tilboðið í innanhússfrágang nýs rannsóknahúss Nýs Landspítala við Hringbraut, eða rúmlega 10,25 milljarða króna. Fjögur fyrirtæki skiluðu tilboðum í verkið og voru þau öll yfir 9,02 milljarða króna kostnaðaráætlun verkkaupa.

Tilboð hafa verið opnuð í útboði Nýs Landspítala (NLSH) vegna innanhússfrágangs í nýju rannsóknahúsi við Hringbraut í Reykjavík. Húsið er um 19.000 fermetrar að stærð og hefur þegar verið steypt upp. Lokafrágangur á útveggjum og þaki stendur nú yfir.

Kostnaðaráætlun verkkaupa hljóðaði upp á 9.023 milljónir króna án virðisaukaskatts.

Fjögur tilboð bárust

Bjóðandi Tilboðsverð Hlutfall af áætlun
Eykt ehf. 10.254.581.446 kr. 113,6%
ÞG verktakar ehf. 10.327.053.023 kr. 114,4%
Þarfaþing hf. 10.488.474.220 kr. 116,2%
Ístak hf. 11.963.290.035 kr. 132,6%

Lægsta tilboðið, frá Eykt, er um 1,23 milljörðum króna yfir kostnaðaráætlun verkkaupa, eða 13,6%. Munurinn á tilboðum Eykt og ÞG verktaka, sem áttu næstlægsta tilboðið, er um 72,5 milljónir króna.

Hæsta tilboðið kom frá Ístaki og nam tæpum 12 milljörðum króna, eða 32,6% yfir kostnaðaráætlun.

NLSH fer yfir tilboðin

Gunnar Svavarsson, framkvæmdastjóri NLSH ohf., segir það fagnaðarefni að verktakar hafi lagt fram metnaðarfull tilboð í áframhaldandi byggingu rannsóknahússins.

Hann segir að á næstu dögum verði farið yfir frávik frá kostnaðaráætlun og formskilyrði sem bjóðendur þurfi að uppfylla.

Gunnar bendir jafnframt á að þrír bjóðendanna hafi áður komið að stórum verkefnum á vegum NLSH og þekki vel til starfsvæðisins.

Opnun tilboða felur ekki í sér endanlega niðurstöðu útboðsins. Val á verktaka getur ráðist af fleiri forsendum en tilboðsverði og hefur ekki verið tilkynnt um samningsgerð.

Fimm hæða rannsóknahús með kjallara

Nýja rannsóknahúsið verður fimm hæðir auk kjallara og mun hýsa rannsóknastarfsemi Landspítala á einum stað. Starfsemi Blóðbankans mun einnig flytjast í bygginguna.

Húsið verður tengt nálægum byggingum með neðanjarðargöngum.

Rannsóknastofur Landspítala annast meðal annars þjónustu- og tilvísunarrannsóknir fyrir heilbrigðisstofnanir um land allt, auk kennslu, vísindarannsókna og rannsóknartengds náms.

Heimild: NLSH ohf.

Sjá eldri frétt á BYGGINGAR.IS: Útboð vegna innanhússfrágangs í rannsóknahúsi Nýs Landspítala

Efni: Eykt ehf. lægst með 10.25 milljarða tilboð í rannsóknahús Nýs Landspítala