Home Fréttir Í fréttum HMS auglýsir námskeið til löggildingar mannvirkjahönnuða

HMS auglýsir námskeið til löggildingar mannvirkjahönnuða

46
0
HMS auglýsir námskeið til löggildingar mannvirkjahönnuða
Mynd: HMS

HMS auglýsir námskeið til löggildingar mannvirkjahönnuða

Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun (HMS) og Iðan fræðslusetur standa fyrir námskeiði fyrir mannvirkjahönnuði sem hyggjast sækja um löggildingu til að gera aðal- og séruppdrætti. Námskeiðið hefst 27. október næstkomandi og fer alfarið fram á netinu. Umsóknarfrestur rennur út 19. október.

Námskeiðið er ætlað mannvirkjahönnuðum sem hyggjast öðlast löggildingu HMS samkvæmt 25. og 26. gr. laga um mannvirki nr. 160/2010.

Á námskeiðinu verður farið yfir lög, reglugerðir og annað regluverk sem varðar störf mannvirkjahönnuða og þær kröfur sem gerðar eru til þeirra við hönnun mannvirkja.

Rúmlega 20 klukkustunda netnám

Kennslan fer fram á netinu og nemendur hafa aðgang að fyrirlestrum, stuðningsgögnum og viðbótarefni í rafrænu kennslukerfi.

Heildarlengd fyrirlestra er rúmlega 20 klukkustundir og geta þátttakendur skipulagt námið eftir eigin þörfum innan námskeiðstímabilsins.

Námskeiðinu lýkur með rafrænu krossaprófi föstudaginn 20. nóvember 2026. Próftími verður fjórar klukkustundir.

Námskeiðsgjald tæpar 119 þúsund krónur

Námskeiðsgjaldið er 118.900 krónur.

Helstu dagsetningar eru eftirfarandi:

  • 19. október 2026: Síðasti dagur til að sækja um þátttöku.
  • 27. október 2026: Námskeiðið hefst.
  • 20. nóvember 2026: Lokapróf á netinu.

Starfsfólk HMS fer yfir umsóknir og staðfestir hvort umsækjendur uppfylli skilyrði fyrir þátttöku eða hvort þörf sé á frekari gögnum.

HMS hvetur mannvirkjahönnuði sem hyggjast sækja um löggildingu til að skrá sig tímanlega.

Nánari upplýsingar um námskeiðið og umsóknarferlið er að finna á vef HMS og hjá Iðunni fræðslusetri.

Heimild: HMS.is

Efni: HMS auglýsir námskeið til löggildingar mannvirkjahönnuða