Nýtt hjúkrunarheimili rís á Ásbrú
Framkvæmdir við nýtt hjúkrunarheimili við Keilisbraut á Ásbrú eru nú að hefjast.
Nýja hjúkrunarheimilið verður um 6.500 fermetrar og mun rúma 90 hjúkrunarrými en áætlað er að það verði afhent um mitt ár 2028.
Icelandic Home ehf. sér um uppbyggingu hjúkrunarheimilisins.
Kynningarfundur um uppbyggingu hjúkrunarheimilsins fór fram í vikunni en þar var verkefnið kynnt í máli og myndum og Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir, forstjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja, og Vilhjálmur Árnason, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, fóru yfir fyrirhugaða starfsemi hjúkrunarheimilisins og þýðingu þess fyrir samfélagið á Suðurnesjum.


Heimild: Mbl.is
Sjá eldri frétt á BYGGINGAR.IS












