Útboð:
Með þessu almenna útboð óskar Nýr Landspítali ohf kt. 500810-0410 (NLSH) eftir tilboðum í áfanga 2 en um er að ræða kaup á 24 lyftur, til fólks-, sjálfvirka AGV vagna- og vöruflutninga. 19 lyftur verða settar upp í Meðferðarkjarna og 5 lyftur verða settar upp í Rannsóknarhúsi.
Lyfturnar eru flestar ætlaðar til fólksflutninga en jafnframt til vöruflutninga og sjálfvirka flutningsvagna AGV/AMR (AGV = Automated Guided Vehicles, AMR=Autonomous Mobile Robot).
Ístak hf. er stýriverktaki verksins auk þess að sjá um innanhúss frágang á hæðum K2-4h og hefur stýriverktaki þegar hafið störf þegar þetta útboð er auglýst.
Verktaki skal útvega, setja upp, tengja, prófa og ganga að fullu frá 24 vöru- og fólkslyftum í meðferðarkjarna og rannsóknarhúsi NLSH við Hringbraut. Um er að ræða steypt lyftugöng eða lóðrétt stálvirki.
Í verkinu felst:
- hönnun, framleiðsla, flutningur og uppsetning á lyftunum
- hönnun og uppsetning viðbótar stálvirkis í lyftugöngum þar sem þörf er á til samræmis við kröfur framleiðanda
- hönnun og uppsetning á endanlegri lýsingu, raflögnum og tenglum í lyftugöngum.
- uppsetning á hlífðarflötum veggja, gólfa og lofta innan í lyftum, sem verður fjarlægt við lok framkvæmdatíma
- þjónustusamningur fyrir viðhald og rekstur.
| Útboðsgögn afhent: | 24.04.2026 kl. 10:35 |
| Skilafrestur | 28.05.2026 kl. 13:00 |
| Opnun tilboða: | 28.05.2026 kl. 13:15 |












