Útboð:
Landsvirkjun óskar eftir tilboðum í verkefnið SUL002200 – Endurnýjun 400V stöðvarveitu í Sultartangastöð.
Verkið felst í útvegun á átta 400V AC afldreifingum, auk uppsetningar og gangsetningar búnaðarins. Einnig skal fjarlægja og farga núverandi búnaði.
Innifalið í verkefninu er jafnframt endurnýjun stofnstrengja til og frá aðaldreifingum, þar með talinn frágangur, tengingar og prófanir.
| Útboðsgögn afhent: | 13.05.2026 kl. 11:23 |
| Skilafrestur | 16.06.2026 kl. 13:00 |
| Opnun tilboða: | 16.06.2026 kl. 13:00 |












