Nýherjahúsið verður hjúkrunarheimili
Gert er ráð fyrir um 100 hjúkrunarrýmum í húsnæðinu.
Reitum hefur borist tilkynning frá Framkvæmdasýslunni – Ríkiseignum (FSRE) þess efnis að Borgartún 37, sem hýsti áður höfuðstöðvar Origo (áður Nýherja), hafi verið valið í markaðskönnun um hjúkrunarheimili á höfuðborgarsvæðinu.
Tillaga Reita varðandi Borgartún 37 gerir ráð fyrir að húsið verði stækkað um 700 fermetra og stærð þess verði um 7.300 fermetrar að framkvæmd lokinni. Gert er ráð fyrir um 100 hjúkrunarrýmum í húsnæðinu.
Áætlaðar leigutekjur í tilboði Reita nema um 440 milljónir króna á ársgrunni, að því er kemur fram í tilkynningu til Kauphallarinnar.
Fasteignafélagið segir ákvörðun um endanlega samningsgerð vera háða því að samkomulag náist við FSRE um skilmála leigusamnings.
Mat tilboða í markaðskönnuninni byggðist meðal annars á verði, stærð, staðsetningu og öryggi.
Morgunblaðið greindi frá því í september að hugmyndir um að breyta Borgartúni 37 í hjúkrunarheimili hefðu fengið ekki hljómgrunn hjá skipulagsfulltrúa Reykjavíkur. Eftir að fasteignafélagið gerði breytingar á tillögu sinni hafi félagið hins vegar fengið jákvæð viðbrögð frá Reykjavíkurborg.
Heimild: Vb.is
Sjá eldri frétt á BYGGINGAR.IS: Reitir kaupa fasteignir fyrir átján milljarða
Efni: Nýherjahúsið verður hjúkrunarheimili












