Home Fréttir Í fréttum 2.000 tonna brúargólf brátt dreg­ið yfir Ölfusá

2.000 tonna brúargólf brátt dreg­ið yfir Ölfusá

155
0
2.000 tonna brúargólf brátt dreg­ið yfir Ölfusá
Horft yfir framkvæmdasvæðið við Ölfusá þar sem unnið er að smíði nýrrar brúar. Brúargólfið hefur verið sett saman á landi og undirbúningur stendur yfir fyrir drátt þess yfir ána. Myndir: Vegagerðin

2.000 tonna brúargólf brátt dreg­ið yfir Ölfusá

Undirbúningur fyrir einn stærsta áfanga við byggingu nýrrar Ölfusárbrúar stendur nú yfir. Á næstu dögum verður 330 metra langt og um 2.000 tonna þungt brúargólf dregið frá austurbakka Ölfusár yfir á vestari bakkann. Verkið er vandasamt og gert er ráð fyrir að það taki um tíu daga.

Höskuldur Tryggvason verkefnastjóri frá Vegagerðinni.

Undanfarið hefur verið unnið að því að ljúka samsetningu stálgrindar brúarinnar og undirbúa flutning hennar yfir ána. Búið er að koma fyrir lögnum í brúargólfinu, meðal annars fyrir heitt og kalt vatn, háspennu og fjarskipti.

Skúli Sigvaldason staðarstjóri ÞG verktaka.

Brúargólfið færist áfram í litlum skrefum

Við færsluna verða notaðir öflugir vökvadrifnir tjakkar sem draga brúargólfið áfram eftir sérstökum dráttarlegum. Brúargólfið hvílir á púðum sem renna eftir sléttum stálplötum og koma í veg fyrir skemmdir á yfirborði stálbitanna.

Tjakkarnir draga brúargólfið áfram um hálfan metra í einu og er áætlað að hægt verði að færa það um tíu metra á klukkustund við bestu aðstæður.

Sérhæfður búnaður undir stálvirki brúarinnar sem gegnir hlutverki við færslu brúargólfsins yfir Ölfusá.

Til að styðja við brúargólfið á meðan það er dregið yfir ána hefur verið komið fyrir stóru bráðabirgðamastri ofan á því. Frá mastrinu liggja stálkaplar sem halda uppi fremri enda brúargólfsins meðan á færslunni stendur.

Sérhæfður stálbúnaður sem notaður er við að færa þunga brúarhluta til.

Vandasamt verk sem krefst mikils undirbúnings

Færsla svo stórs og þungs mannvirkis er flókin framkvæmd sem krefst nákvæmrar skipulagningar og mikilla öryggisráðstafana. Verktakinn hefur undirbúið verkið í samráði við viðbragðsaðila og verður framkvæmdasvæðið lokað óviðkomandi á meðan brúargólfið er dregið yfir ána.

Sterkir stálstrengir halda uppi framenda brúargólfsins og veita honum stuðning þegar stálvirkið verður dregið yfir Ölfusá.

Gert er ráð fyrir að færslan taki átta til tólf daga, gangi allt samkvæmt áætlun.

Í meðfylgjandi myndbandi er farið yfir undirbúning framkvæmdarinnar og útskýrt hvernig staðið verður að því að draga þetta 2.000 tonna mannvirki yfir Ölfusá.

Heimild: Vegagerðin

Sjá eldri frétt á BYGGINGAR.IS: 500 krónur mun kosta að aka yfir nýja Ölfusárbrú

Efni: 2.000 tonna brúargólf brátt dreg­ið yfir Ölfusá