Myndband um framkvæmdina við Hringveg um Ölfusá
Í nýju myndbandi sem fjallar um framkvæmdina við Hringveg (1) um Ölfusá eru meðal annars sýndar tölvugerðar teikningar af nýju brúnni yfir Ölfusá og grafísk kort sem sýna legu vegarins.
Verkið Hringvegur (1) um Ölfusá snýst um færslu Hringvegar (1) út fyrir þéttbýlið á Selfossi. Helstu verkþættir eru nýbygging 3,7 km Hringvegar, bygging nýrrar 330 m langrar stagbrúar yfir Ölfusá og um 1 km af öðrum tveggja akreina vegum.
Gerð verða ný vegamót við Hringveg austan Selfoss, undirgöng undir Hringveg fyrir gangandi, hjólandi og hestamenn ásamt undirgöngum fyrir bíla og gangandi. Auk umferðar mun brúin bera uppi lagnir veituaðila, rafmagn, ljósleiðara, heitt vatn og kalt.





Heimild: Vegagerðin












