Guðný segir að strax hafi verið settar upp merkingar.
Vísir/Bjarni
Kosti um tvo milljarða að laga verstu gangstéttirnar í borginni
Guðný María Jóhannsdóttir, formaður umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkur, segir þörf á gangstéttarviðgerðum í Reykjavík fyrir allt að tvo milljarða. Það séu aðeins þær gangstéttir sem verst farnar eru.
Rætt var við Guðnýju í Reykjavík síðdegis í gær en þar fór hún yfir viðbrögð meirihlutans við slysi í Langarima í Grafarvogi.
Guðný sagði að þegar greint hafi verið frá slysi konunnar um helgina hafi ráðið tekið fyrir framkvæmdaáætlun um gangstéttarviðgerðir og sett af stað merkingar við gangstéttina. Svo hafi framkvæmdir hafist.
„Þessi framkvæmd átti að fara fram í ágúst og við ýttum henni framar,“ segir Guðný María og að staðan sé víða slæm. Íbúar hafi haft samband vegna slæmra gangstétta en hafi fengið lítil viðbrögð.
„Það sem við gerðum, og settum á okkar verkefnalista, er að fara í átakslista að fara í gangstéttarviðgerðir,“ segir hún og að það sé víða þörf á viðgerðum.
Aðstæður voru erfiðar á gangstéttinni. Vísir/Bjarni