Home Fréttir Í fréttum Mosfellsbær semur við Fagurverk um umfangsmiklar framkvæmdir í Markholti

Mosfellsbær semur við Fagurverk um umfangsmiklar framkvæmdir í Markholti

257
0
Markholt
Myndir: Mosfellsbær

Markholt

Mosfellsbær hefur undirritað samning við verktakafyrirtækið Fagurverk ehf. um umfangsmiklar framkvæmdir við endurnýjun veitukerfa í Markholti.

Framkvæmdirnar eru þegar hafnar og fela í sér heildarendurnýjun á helstu lögnum og innviðum götunnar.

Allar helstu veitulagnir endurnýjaðar

Samkvæmt upplýsingum frá Mosfellsbæ verður unnið að endurnýjun:

  • Hitalagna
  • Vatnslagna
  • Götulýsingar
  • Raflagna
  • Fráveitulagna

Verkið er liður í áframhaldandi uppbyggingu og endurnýjun innviða í eldri hverfum sveitarfélagsins.

Framkvæmdum skipt í tvo áfanga

Stefnt er að því að framkvæmdum ljúki í október 2026.

Verkinu verður skipt upp í tvo áfanga:

  • Áfangi 1: Markholt 1–9
  • Áfangi 2: Markholt 9–24
Á mynd:
Efri röð: Jóhanna Björg Hanssen, Þorsteinn Sigvaldason, Erna Rós Bragadóttir f.h. umhverfissviðs Mosfellsbæjar.
Neðri röð: Þóra M. Hjaltested bæjarstjóri og Bergur Þorgilsson fh. Fagurverks ehf.

Íbúafundur haldinn í maí

Íbúar í Markholti hafa þegar fengið upplýsingar um framkvæmdina og verða reglulegar uppfærslur birtar á vef Mosfellsbæjar.

Jafnframt verður íbúafundur haldinn fimmtudaginn 28. maí þar sem íbúum gefst kostur á að ræða við fulltrúa verkefnisins á skrifstofu Mosfellsbæjar í Kjarna.

Mosfellsbær bendir einnig á að íbúar geti sent inn ábendingar og fyrirspurnir í gegnum ábendingarkerfi sveitarfélagsins meðan framkvæmdir standa yfir.

Heimild: Mosfellsbær