Austurstræti 9
Fasteignafélagið sem keypti gamla Landsbankahúsið í fyrra stækkar við sig á Asturstræti.
Þróunar- og fasteignafélagið Landsbyggð hefur fest kaup á Austurstræti 9 í Reykjavík fyrir 635 milljónir króna. Seljandi er félagið Basalt ehf. í eigu Svans Kristbergssonar fjárfestis.
Landsbyggð er eigandi gamla Landsbankahússins við hlið Austurstrætis 9.
Hús Egils Jacobsens
Austurstræti 9 er 595 fermetra friðað hús sem er stundum kallað Hús Egils Jacobsens. Egill Jacobsen verslunarmaður var eigandi húsnæðisins þegar það brann í Brunanum mikla þann 25. apríl 1915. Hann fékk leyfi árið 2020 til að byggja fjögurra hæða verslunar- og skrifstofuhúsnæði en sú heimild var ekki fullnýtt. Búnaðarbankinn var með húsnæðið á árunum 1937-1948.
Í dag er kaffihúsið Laundromat Café á jarðhæð hússins og kokteilbarinn Jungle er á efri hæðinni.
Landsbyggð ehf.
Landsbyggð ehf. er í eigu 50% eigu Kristjáns V. Vilhelmssonar, eins stofnenda Samherja, og 30% eigu Leós Árnasonar samkvæmt fyrirtækjaskrá Skattsins.
Fasteignafélagið keypti síðasta sumar Landsbankahúsið við Austurstræti 11 og Hafnarstræti 10, 12 og 14 fyrir 2,85 milljarða króna.
Heimild: Vb.is












