Home Fréttir Í fréttum Miklar framkvæmdir um allt land

Miklar framkvæmdir um allt land

13
0
Miklar framkvæmdir um allt land
Vegagerðin verður við störf um land allt í sumar. mbl.is/Eyþór

Miklar framkvæmdir um allt land hjá Vegagerðinni

Eitt af helstu verkefnum Vegagerðarinnar á höfuðborgarsvæðinu í sumar er nýbygging Arnarnesvegar á tæplega 2 km kafla milli Rjúpnavegar og Breiðholtsbrautar.

Nú þegar hefur verið byggð akstursbrú yfir Breiðholtsbraut með aðskildum göngu- og hjólastíg. Í byggingu er göngu- og hjólabrú yfir Arnarnesveg sem tengir stofnstíga milli Reykjavíkur og Kópavogs.

Undirgöngin undir Breiðholtsbraut við Suðurfell og Jaðarsel eru nánast búin og önnur eru í smíðum undir Arnarnesveg við Rjúpnaveg.

Hringtorg verða á mótum Arnarnesvegar og Rjúpnavegar og Vatnsendavegar. Stígur fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur verður lagður frá Rjúpnavegi yfir í Elliðaárdal og búið er að taka í notkun nýja göngu- og hjólabrú yfir Dimmu. Verklok eru áætluð fyrir árslok 2026.

Heimild: Mbl.is