Útboð:
Félagsbústaðir hf óska eftir tilboðum í verkið: Hraunbær 107 A-B Viðgerðir utanhúss.
Verkið felst í þak- og utanhússviðgerðum s.s endurnýjun á þakjárni, viðgerðum að timbursvölum, endurnýjun á gluggum og hurðum sem og endurnýjun á utanhússklæðningu. Einnig er innifalið í verkinu að laga loftun undir utanhússklæðningu.
Helstu magntölur eru eftirfarandi:
| Rif og förgun þakjárns | 280 m2 |
| Endurnýjun bárujárns og þakpappa | 280 m2 |
| Endurnýjun glugga | 60 stk |
| Endurnýjun útveggjaklæðninga | 460 m2 |
| Framlenging á undirkerfi | 770 m |
Útboðsgögn
Útboðsgögn verða öllum aðgengileg á útboðsvef EFLU verkfræðistofu, https://efla.ajoursystem.net, frá og með miðvikudeginum 13.05 2026 kl 13:00.
Skil tilboða
Tilboðum skal skila með rafrænum hætti, fyrrnefndan vef, eigi síðar en föstudaginn 29.05.2026 kl. 12:00.












