Home Fréttir Í fréttum Málning hagnast um 350 milljónir

Málning hagnast um 350 milljónir

61
0
Málning hagnast um 350 milljónir
Ljósmynd: Haraldur Guðjónsson

Málning hagnast um 350 milljónir

Sölutekjur samstæðunnar jukust um 7,6% milli ára.

Málning ehf., móðurfélag Slippfélagsins, skilaði 356 milljóna króna hagnaði á síðasta ári samanborið við 107 milljóna króna hagnað árið 2024. Aukinn hagnað má m.a. rekja til sölu fasteignar í fyrra.

Rekstrartekjur samstæðunnar námu 3.760 milljónum króna í fyrra. Þar af voru sölutekjur 3.440 milljónir króna, sem samsvarar 7,6% vexti milli ára. Rekstrarhagnaður fór úr 105 milljónum í 422 milljónir milli ára. Ársverk voru 75, samanborið við 74 árið áður.

Málning í Kópavogi er eina málningarverksmiðjan á Íslandi. Félagið er einnig umboðsaðili fyrir margar tegundir af málningu sem notuð er til skipa, stál- og húsbygginga. Málning rekur málningarverslanir í Reykjavík, Hafnarfirði, Keflavík, Akureyri og Selfossi.

Eignir samstæðunnar voru bókfærðar á 2,2 milljarða króna í árslok 2025 og eigið fé var 1,7 milljarðar króna. Stjórn félagsins lagði til við aðalfund að greiddur verði út arður að fjárhæð 50 milljónir króna í ár.

Skjáskot af Vb.is

Málning er í 98% eigu Framherja ehf., sem er að mestu leyti í eigu hjónanna Valdimars Bergstað og Halldóru Baldvinsdóttur.

Heimild: Vb.is