Home Fréttir Í fréttum Breikka og styrkja Laugarvatnsveg

Breikka og styrkja Laugarvatnsveg

88
0
Breikka og styrkja Laugarvatnsveg
Hér er verið að setja göng undir veginn rétt austan við Laugarvatn. Umferðin er í hægagandi meðan á jarðvinnu þessari stendur. — Morgunblaðið/Sigurður Bogi

Breikka og styrkja Laugarvatnsveg

Lagfæra leið að Gullfossi og Geysi

Unnið er þessa dagana að styrkingu og breikkun Laugarvatnsvegar í áttina að Geysi og Gullfossi. Undir er þriggja kílómetra kafli frá þorpinu að Laugarvatni til austurs að bænum Hjálmsstöðum.

Verkið felst í því að skipta um jarðveg fyrir breikkun í köntum, fræsa upp núverandi slitlag á veginum, jafna það út og breikka veginn lítils háttar. Þá verður keyrt að jafnaði 20 cm þykkt burðarlag yfir, ræsi endurnýjuð og malbikað yfir. „Verkinu miðar vel og allt er á áætlun,” segir Óskar Ólafsson hjá Óskataki, sem hefur þessa framkvæmd með höndum.

Heimild: Mbl.is