Home Fréttir Í fréttum Leyfa ekki byggingu íbúðarhúsa við Vatnsenda

Leyfa ekki byggingu íbúðarhúsa við Vatnsenda

83
0
Leyfa ekki byggingu íbúðarhúsa við Vatnsenda
Um fáar jarðir hefur verið þrætt jafnmikið í gegnum tíðina og Vatnsenda við Elliðavatn. mbl.is/Ómar Óskarsson

Leyfa ekki byggingu íbúðarhúsa við Vatnsenda

Kópavogsbær hefur hafnað því að gera breytingar á aðal- og deiliskipulagi sínu til að heimila byggingu 18 nýrra einbýlishúsa á Vatnsendalandinu.

Þetta var niðurstaðan þegar umsókn þess efnis var tekin fyrir á fundi skipulags- og umhverfisráðs bæjarins í vikunni.

Vatnsendalandið er líklega sú eign sem mest hefur verið þrætt um hér á landi en fjöldi dómsmála hefur fallið á síðastliðnum áratugum um eignarhald yfir henni. Umdeild erfðaskrá hefur gert það að verkum að öll helstu eignarréttindi landsins hafa erfst til elsta sonar hverju sinni og hvílir sú kvöð á ábuanda hverju sinni að stunda þar búskap.

Sjálfstæðismenn klofnuðu í afstöðu sinni

Ábúandi á Vatnsenda er Magnús Pétur Hjaltested sem er rétt rúmlega tvítugur en hann tók við jörðinni eftir fráfall föður síns, Þorsteins Hjaltested, árið 2018. Sótt var um leyfi til að breyta skipulaginu fyrir hönd Magnúsar Péturs.

Hart var tekist á um umsóknina á fundinum en að endingu fór svo að umsókninni var hafnað með atkvæðum þriggja sjálfstæðismanna, þeirra Hjördísar Ýrar Johnson, Árnínu Steinunnar Kristjánsdóttur og Guðmundar Jóhanns Jónssonar.

Andri Steinn Hilmarsson, fjórði sjálfstæðismaðurinn í ráðinu, sat hins vegar hjá og var ekki skrifaður fyrir bókunum samflokksmanna sinna.

Segir niðurstöðuna ekki í samræmi við stefnuna

Í bókun þeirra sjálfstæðismanna sem höfnuðu umsókninni segir að breytt skipulag myndi fela í sér umtalsverða þéttingu á svæði sem nú er skilgreint sem opið svæði.

Telja þeir þó mikilvægt að koma gatnagerð og tengdum innviðum í betra horf á svæðinu og að ástæða sé til þess að hraða aðgerðum fyrir veturinn sem tryggja umferðaröryggi á svæðinu.

Einar Jóhannes Guðnason, bæjarfulltrúi Miðflokksins og áheyrnarfulltrúi í ráðinu, lagði fram bókun þar sem hann harmar að umsókninni hafi verið hafnað. Hann segir niðurstöðuna skjóta skökku við stefnu Sjálfstæðisflokksins, sem skilgreinir eignarrétt sem grundvallarmannréttindi sem beri að styrkja og vernda.

„Miðflokkurinn telur að eðlilegra hefði verið að leyfa málinu að fara áfram í skipulagsferli, auglýsa tillöguna, kalla eftir umsögnum og meta umhverfisáhrif hennar eftir því sem við á. Sérstaklega er óviðunandi að höfnuninni fylgi hvorki tillaga um næstu skref né tímasett áætlun um þá heildstæðu stefnumótun sem vísað er til,“ segir í bókun Einars.

Andri Steinn Hilmarsson, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, fylgdi ekki línu samflokksmanna sinna. mbl.is/Sigurður Bogi

Gagnrýna seinaganginn

Fulltrúar Samfylkingar og Viðreisnar í ráðinu sátu hjá við afgreiðslu málsins en þeir lögðu þó fram sameiginlega bókun þar sem gerður var fyrirvari við ákvörðun meirihlutans um að hafna umsókninni.

Telja fulltrúarnir þörf á umbótum á svæðinu, meðal annars hvað varðar gatnagerð, lýsingu, fráveitu og umferðaröryggi, og gagnrýna þeir hve lengi málið var í vinnslu án þess að skýr niðurstaða lægi fyrir.

„Vandaðri og markvissari málsmeðferð hefði getað komið í veg fyrir að svo miklum tíma og fjármunum yrði varið án niðurstöðu. Það er sérstaklega ámælisvert í ljósi þess að brýn úrlausnarefni á svæðinu, þar á meðal varðandi umferðaröryggi barna og uppbyggingu innviða, eru enn óleyst og ekki liggur fyrir hvenær ráðist verður í nauðsynlegar úrbætur,“ segir í bókuninni.

Heimild: Mbl.is
Efni: Leyfa ekki byggingu íbúðarhúsa við Vatnsenda