Home Fréttir Í fréttum Hagnaður BYGG jókst um 83% – 4.3 milljarða hagnaður á fimm árum

Hagnaður BYGG jókst um 83% – 4.3 milljarða hagnaður á fimm árum

124
0
Hagnaður BYGG jókst um 83% – 4.3 milljarða hagnaður á fimm árum
Mynd: BYGG

Hagnaður BYGG jókst um 83%

Byggingarfélag Gylfa og Gunnars, BYGG, hagnaðist um 694 milljónir króna á síðasta ári samanborið við 379 milljóna króna hagnað árið 2024.

Hagnaður félagsins jókst því um 315 milljónir króna milli ára, eða um 83%.

Viðskiptablaðið greinir frá þessu og segir að frá árinu 2021 hafi BYGG samtals hagnast um 4,3 milljarða króna.

Afkoma félagsins hefur því tekið talsvert við sér eftir samdrátt árið 2024.

BYGG hagnaðist um 1.055 milljónir króna árið 2023 en hagnaðurinn féll niður í 379 milljónir árið eftir. Nýjasta niðurstaðan, 694 milljóna króna hagnaður, þýðir að félagið hefur náð til baka tæplega helmingi af þeirri lækkun sem varð milli áranna 2023 og 2024.

Sterk verkefnastaða í lok árs 2024

BYGGINGAR.IS greindi frá því í fyrra að tekjur BYGG hefðu dregist saman um 30% árið 2024 og numið 7,6 milljörðum króna samanborið við 10,8 milljarða árið áður.

Rekstrarhagnaður fyrir fjármagnsliði nam þá 653 milljónum króna en hafði verið um tveir milljarðar árið 2023.

Samdrátturinn var meðal annars rakinn til þess að minna var selt og afhent af íbúðum en árið áður.

Verkefnastaða félagsins var þó sögð nokkuð sterk í árslok 2024. Verkbirgðir höfðu aukist verulega vegna þess að framkvæmdir ársins voru umfram sölu og afhendingu íbúða.

Verkbirgðir námu 17,3 milljörðum króna í árslok 2024 og seldar en óafhentar íbúðir voru að verðmæti rúmlega 2,0 milljarðar króna.

Eignir BYGG námu þá 28,5 milljörðum króna og eigið fé 12,4 milljörðum.

Fjölmörg verkefni í uppbyggingu

BYGG hefur undanfarin ár staðið að umfangsmikilli íbúðauppbyggingu á höfuðborgarsvæðinu og í Reykjanesbæ.

Á árinu 2024 seldi og afhenti samstæðan meðal annars fasteignir í Hlíðarhverfi í Reykjanesbæ, Naustavör í Kópavogi og Nónhamri–Hringhamri í Hafnarfirði.

Jafnframt héldu framkvæmdir áfram meðal annars við Bolholt og Fossvogsveg í Reykjavík, Naustavör í Kópavogi, Hjallabraut, Ásvelli og Álfhellu í Hafnarfirði og í Hlíðarhverfi í Reykjanesbæ.

BYGG er í eigu stofnendanna Gylfa Ómars Héðinssonar og Gunnars Þorlákssonar.

Heimild: Vb.is

Sjá eldri frétt á BYGGINGAR.IS: BYGG hagnast um 379 milljónir

Efni: Hagnaður BYGG jókst um 83% – 4.3 milljarða hagnaður á fimm árum