Home Fréttir Í fréttum Góður gangur í gerð nýrra ofanflóðavarna í Neskaupstað

Góður gangur í gerð nýrra ofanflóðavarna í Neskaupstað

80
0
Góður gangur í gerð nýrra ofanflóðavarna í Neskaupstað
Mynd: Fjarðabyggð

Góður gangur í gerð nýrra ofanflóðavarna í Neskaupstað

Framkvæmdir við ofanflóðavarnir við Nes- og Bakkagil í Neskaupstað hafa gengið vel að undanförnu og eru töluvert á undan upprunalegri tímaáætlun.

Lokið er við uppsetningu 14 af 20 keilum og búið er að setja upp um 70% af þvergarði.  Í júní hófst að auki vinna við nýtt fjölskyldusvæði.

Hefur jarðvinna og formun lands kringum nýja strandblakvelli verið í forgangi og hafa þeir formlega verið teknir í notkun undir æfingar.

Heimild: Fjarðabyggð