Gjaldþrotum fjölgar á milli ára
Á öðrum ársfjórðungi 2026 voru 334 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta sem er 12% aukning miðað við sama tímabil árið 2025 þegar 299 fyrirtæki urðu gjaldþrota.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Hagstofunni.
Af þeim 334 fyrirtækjum sem tekin voru til gjaldþrotaskipta voru 121 með virkni á fyrra ári, þ.e. höfðu rekstrartekjur eða greiddu laun árið 2025. Gjaldþrotum virkra fyrirtækja fjölgaði um 23% miðað við sama tímabil fyrra árs.
Örlítil fjölgun nýskráninga
Hjá þeim virku fyrirtækjum sem tekin voru til gjaldþrotaskipta á öðrum fjórðungi 2026 störfuðu að jafnaði 645 árið 2025.
Á þessu sama tímabili ársins í ár voru nýskráð 854 fyrirtæki í atvinnurekstri nýskráð og fjölgar þeim því lítillega á milli ára en á sama tímabili í fyrra voru 844 fyrirtæki nýskráð.
Flestar nýskráningar voru í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð eða 133 sem er fækkun um 6% miðað við sama tímabil fyrra árs.
Heimild: Mbl.is












