
Fyrsta skóflustunga tekin að þjónustuhúsi Bláa Lónsins í Árnesi
Fyrsta skóflustunga var tekin í vikunni að nýju þjónustuhúsi Bláa Lónsins í Árnesi. Húsið verður um 1.000 fermetrar að stærð og mun þjóna rekstri fyrirtækisins á svæðinu, þar á meðal Gestastofunni og Fjallaböðunum í Þjórsárdal, hótelinu í Hrauneyjum og allri starfsemi félagsins í Kerlingarfjöllum. Í húsinu verða meðal annars þvottahús, lagerar, bifreiðaþjónusta og kæli- og frystigeymsla.

Framkvæmdir eru í höndum Landsstólpa, fyrirtækis með heimilisfesti í Skeiða- og Gnúpverjahreppi.
Áætlað er að um tíu starfsmenn muni starfa í húsinu þegar starfsemi í Þjórsárdal hefst vorið 2028. Framkvæmdir eru nú hafnar og stefnt er að því að húsið verði tekið í notkun undir lok árs 2026.
Heimild: Dfs.is











